Jæææjjaaa......!!!!
Trúi ekki að það séu virkilega komin jól aftur

Finnst svo stutt síðan þau voru síðast að ég er ekki alveg að ná áttum á þessu

En þetta er búið að vera frábært ár sem er búið að líða allt of hratt

Ekkert smá mikið búið að gerast og margir draumar uppfilltir, en við erum samt nokkuð viss um að næsta ár verði ekki toppað þar sem við byrjum jú árið á bestu jólagjöfinni.. litla prinsinum okkar

Ekki nema 13 dagar í settan dag og við alveg að farast úr spennnu... hvernig ætli hann líti út ?? ætli hann verði með hár ?? hvað ætli hann verði stór ?? osfrv ofrv hahaha ..... en nú er þetta allt að koma í ljós ....
En kannski spurning um að telja upp svona það helsta sem gerðist á árinu

Er að hugsa samt um að byrja í lok ársins 2007, þá fengum við íbúðina okkar afhenta ..
Og fluttum inn þarna í lok ársins

Byrjuðum ss árið á því að klára að koma okkur almeninlega fyrir og búa jú til okkar heimili.. Okkur líður bara rosalega vel hérna og erum ofsalega sátt

Svo gerðist ekki mikið fyrr en í apríl, jú þá fengum við 2 strik á prófið okkur til MIKILLAR gleði

við tóku lannnggggiiiirrrrrr 3 mánuðir í því að reyna ða þegja yfir litla kraftarverkinu okkar... en það tókst nú samt bara nokkuð vel... en kannski ekki alveg eins og ætlað var í upphafi híhí....
Svo í júní fórum við til Danmerkur, með Mömmu, Dóra og Helgur Dís og vorum í sumarhúsi þar í viku og svo inn í Koben í 3 Daga... þetta var bara rosa fín ferð svona fyrir utan sjúklegt frjókorna ofnæmi í sveitinni haha... en lifði það af svo að þetta var bara kósý ferð

Svo enduðum við inn í koben og vorum þar hjá frænda hanns Smára og þar var sko heldur betur´dúllað við okkur framm og til baka ... svo var farið og verslað þess á milli....
Aðeins í hogm og kíkt á pínu ponsu fötin og auðvita keypt smá.... en það sem gegnið var nú ekkert voða gott við okkur þá kannski héldum við aðeins aftan í við okkur.. en keyptum amk heila ferðatösku hahah.....
Svo fór sumarið bara í kósýheit...enda ekkert smá heitt sumar... jiiiiii (Muna að verða ALDREI aftur ólétt að sumri til ómæææ) Og algjör steikarpottur hérna í garðinum hjá okkur.. ekki slæmt að liggja þar í góðum félagskap

Svo kom langþráði ágúst....20v sónarinn.... og KYNIÐ á krílinu okkar.....
Þar var okkur sagt að lítil stelpa væri á leiðinni..... Ennnnn ca 3 vikum seinna fórum við í annan sónar þar sem læknirinn talaði um lítin prins.... svo að við biðum spennt eftir 3D sónarnum og þá hlitum við nú að fá lokasvarið haha...en þar var okkur sagt aftur stelpa... þá vorum við nú nokkuð viss um að við værum save.. ENNNNN... aldeilis ekki hahaha... Litli gormurinn okkar sýndi okkur svo það allra heilagasta og það MJÖÖÖGGGG vel og þá fór sko ekki á milli mála að það kúrir lítill prins í kúlunni minni

Svo að við erum komin með ansi gott sögusafn fyrir hann þegar hann verður eldri

En annars var ekki mikið meira fréttnæmt sem gerðist á þessu ári...
Annað en að við erum yfir okkur ánægð með lífið, ótrúlega hamingjusöm og gætum ekki óskað okkur neitt annað en lífið eins og það er í dag

Þá er ég að hugsa um að óska ykkur gleðilegra Jóla, farsældar á nýju ári og hafið það bara sem allra allra best yfir hátíðarnar



Jólakveðja og knús
Auður,Smári og Búbbi litli